Þrefaldir meistarar sl. leiktíðar í körfuknattleik karla, Keflvíkingar, verða með í Evrópubikarkeppni sem sett verður á laggirnar í haust þar sem 64 lið verða með. Keflavík landaði sem kunnugt er Íslandsmeistaratitlinum í vor en áður hafði liðið unnið bikarkeppni KKÍ og einnig fyrirtækjabikarkeppni KKÍ. Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, sagði í gær að verkefnið væri spennandi fyrir Keflavík enda langt um liðið frá því að íslenskt félagslið hefði tekið þátt á þessum vettfangi....