Smá uppdeit á Airwaves. Haldið verður sérstakt hiphop-kvöld á Gauknum fimmtudagskvöldið 17. október og aðanúmerið það kvöld verður J-Live. J-Live, sem heitir Jean-Jacques Cadet, sló í gegn sem unglingur, en lenti síðan í hremmingum með ferilinn. Fyrst komst hann upp á kant við stjórnanda útgáfu og fyrir vikið var plata sem hann var nýbúinn að taka upp fyrir þá útgáfu aldrei gefin út. Þegar honum tókst ekki að fá teipin tók hann plötuna upp aftur en þá fór fyrirtækið á hausinn rétt þegar búið...