Rigningin skellur á kluggana fast, grá birtan yfir liggur. Jörðin fær þunglyndiskast Guð hlýtur að vera hryggur. Hann er búinn að gráta í einn mánuð, heimurinn er grimmur og vægðarlaus jörðin er orðin þreytt og gránuð, enginn veit lengur neitt í sinn haus. Limlestingar og morð, stór og særandi orð. Fólk eru skepnur grimmar og innihalda hugsanir dimmar. Friður er sjaldgæfur í þessum heimi, tilgangslaus dráp á saklausum lífum. Þoka dauðans á sveimi morð framin með beittum hnífum. Höf: G.E.S....