Jæja sælir.. Á ljósunum sem eru við endurvinnsluna og sendibílastöðina fór ég í spyrnu við eclipse og við vorum alveg hnífjafnir upp brekkuna og í 130 þá hættum við og stoppuðum á rauðu hjá húsasmiðjunni… …Anyway minn bíll, Carina E bsk 2,0 er 1300 kg með mér og græjunum sem í honum eru og er 133 hross (er reyndar búnað setja k&n svepp) Þetta hefur sennilega verið bara 2,0 ekki turbo eclipse, en hvað er hann þungur? Hver er hestaflatalan í honum? Ég var nebbla hissa á að halda í við hann!