Það vill svo til að ég dett inn í tímabil sem ég kýs að kalla „ástarsýkis-tímabil”. Þá hlusta ég ekki á neitt nema lög láta mig hugsa einum of mikið; ég skrifaði einmitt einn svoleiðis disk um daginn (t.d. Fix you – Coldplay; In my room – Incubus; Wild Horses – The Rolling Stones). Á meðan ég var inni í bílskúr að telja tómar bjórdósir; var ég með þennan disk á í botn. Fyrir utan það að líða í hausnum eins og að 100 tonna lest hafi strokið ljósan kollinn, þá virkaði ég eins og ég hefði verið...