Copy/Paste Hinn umdeildi stúlknadúett Tatu, sem tekur þátt í Evróvisjón-söngvakeppninni fyrir hönd Rússlands, hefur valdið fjaðrafoki í Riga, þar sem keppnin fer fram. Skipuleggjendur Evróvisjón-söngvakeppninnar eru meðal annars sagðir hafa hótað því að vísa stúlkunum úr keppni. Þá hefur umboðsmaður stúlknanna spurst fyrir um hvort þær þurfi að vera klæddar þegar þær flytja lag sitt í keppninni, sem fram fer í Lettlandi á laugardag. BBC greinir frá því að skipuleggjendur keppninnar hafi...