Sem ég fletti fréttablaðinu í vinnunni, rakst ég á grein sem vægast sagt lét mig missa matarlistina og reitti mig allsvakalega til reiði. Í ágúst 1999, nauðgaði 23 ára maður 17 ára gamalli stelpu svo hrottalega að þegar hún kom á neyðarmóttöku, mátti ekki snerta stúlkuna, þar sem hún var svo aum og sár, allstaðar á líkamanum. Þetta var það hrottalegasta og ömurlegasta nauðgunar tilfelli sem fólk þar á bæ hafði séð. Henni var ekki aðeins nauðgað hrottalega heldur lét þessi viðbjóðslegi...