Er verið að nota þessa peninga sem eru til staðar í dag? Er ekki skólastarf í hættu næsta vetur útaf kennaraskorti? Sem er útaf laununum þeirra. Reykjavík hefur aldrei verið jafn skítug og ákkurat núna og heilbrigðismál eru í rusli. Þeir eru ekki að nota þessa peninga í neitt annað en sjálfa sig.. Hverju breytir það þótt þeir fái minna í kassann? Þá gætu þeir hundskast til að lækka þessi fáránlegu laun sem þeir eru með fyrir að gera nákvæmlega ekki neitt..
Þú veist það fullvel að þeir eru að berjast fyrir lægra bensíni og fleiru. Til hvers að skera á dekking hjá þeim? Hvernig á fólkið í landinu að geta sagt eitthvað um aðgerðir ríkisstjórnarinnar þegar það er barið niður og ekkert hlustað á það? Það er kominn tími á að íslendingar mótmæli. Við látum svoleiðis valta yfir okkur að það hálfa væri hellingur. Það er mikil spilling í gangi hjá vel flestum stjórnendum þessa lands. Þér er kannski alveg sama um það? Ætlar þú að vera eins og meirihluti...
Mér finnst þetta mjög lélegt hjá þeim. Langaði að mæta þangað sjálfur en hafði bara ekki tíma. Ég styð bílstjórana algjörlega í þessu. Ég vona að allt verði brjálað núna, mig langar að mótmæla. :þ
Ég hef enga reynslu af hinum hjólunum, Hondu, Suzuki og þeim, en þú ákveður bara hvort þú vilt afturdrifið eða 4x4, beinskipt eða sjálfskipt og leitar svo bara út frá því. :)
Reyndu að forðast ódýru kínversku hjólin. Þau eru léleg. En ég vinn á verkstæði fyrir Can Am og Yamaha fjórhjól og það er ekkert lítið sem Can Am bilar.. Alltaf einhver 5 Can Am hjól hjá okkur. Sárasjaldan sem Yamaha hjól koma til okkar þannig að ég mæli með Yamaha. Annars fer viðhaldskostnaðurinn bara eftir því hvernig þú ferð með hjólið. Ef þú hugsar vel um það og sinnir reglulegu viðhaldi vel, eins og olíuskipti og slíkt, þá mun það reynast þér vel. Bætt við 11. apríl 2008 - 09:14 Pointið...
Dreymdi það aftur og aftur þegar ég sofnaði undir stýri og vaknaði rétt fyrir framan bílinn sem kom á móti. Það var nógu slæmt þegar það gerðist en að dreyma það aftur og aftur.. Hrökk upp í hvert einasta skipti.
T.d. vél í venjulegri Corollu er 1600 4 strokka. Sem þýðir að hún er með 4 stimpla, með 400 cc slagrými hver. Semsagt 1600 cc af slagrými sem stimplarnir geta notað. Hestöflin eru svo hvað vélin skilar.
Engin leiðindi en ég ætla þá að vona að þið tínið upp eftir hestana eins og hundaeigendur tína upp eftir sín dýr. Hef ekki áhuga á að keyra í skít út um allt..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..