Ég spilaði þetta í íslensku með blöðum, pennum og íslenskri orðabók Spyrjandi fann eitt orð, sagði það upphátt, svo áttu allir að skrifa hvað þeir héldu að orðið þýddi á blað og láta spyrjanda hafa. Hann las svo upp orðin af miðunum og líka réttu þýðinguna. Svo spurði hann alla hvað þeir héldu að orðið þýddi og þeir sem giskuðu á rétt fengu eitt stig, þeir sem giskuðu á orð hjá öðrum spilara létu þann spilara fá stig. Minnir allavegana að þetta hafi verið þannig..