Þetta er alveg fáránlegur málflutningur hjá ykkur! Þið segið að af því að BNA komu hingað í stríðinu þá hafi þeir þar með öðlast ótakmarkaðan stuðning okkar Íslendinga í hvaða ákvörðun sem þeir kunna að taka? Við erum sjálfstæð þjóð og eigum að taka sjálfstæða ákvörðun um alþjóðleg málefni líðandi stundar, ekki að byggja ákvarðanir okkar á því hvað Bandaríkjamenn vilja heldur á því hvað við viljum og hvað okkur finnst. Tengsl okkar við Bandaríkin eiga ekki að ganga út fyrir öll...