Ég skellti mér í gær að sjá hryllingsmyndina Hostel í leikstjórn Eli Roth þar sem Eyþór Guðjónsson fer með eitt aðalhlutverka. Margt var um manninn á þessari sýningu og voru nokkrir aðstandendur myndarinnar á staðnum eins og: Eli Roth, Quentin Tarantino, Derek Richardson, Eyþór Guðjónsson, Barbara Nedeljakova og einhver meðframleiðandi sem ég náði ekki nafninu á. Þeir Eli og Quentin kynntu myndina og sögðu meðal annars að nú væri kominn tími á að Eyþór myndi gera tilkall til þess að taka við...