Ég óska hér með eftir að komast í viðskipti við banka sem krefst EKKI auðkennislykils til að komast í netbanka. Nú er mælirinn fullur. Ég veit notendanafnið mitt, lykilorðið, leyninúmerið en þarf að draslast með auðkennislykil með mér hvert sem ég fer, sem auðvitað gleymist. Hagræðið að því að geta komist í banka úr hvaða tölvu sem er og hvenær sem er horfið. Það að ekki sé hægt að losna undan þessu aukna öryggi er fáránlegt. Ef ég er tilbúinn að taka fulla ábyrgð á úttektum úr heimabanka...