Þú er voða klár tappi…. Svona svalur og svell kaldur. Ég verð nú að segja þér litla sögu af manni sem alltaf var svo vel til hafður, rakspýra angan lafði af honum alla daga og hárið vatnsgreitt til hliðana, ávalt klæddur þessum glansandi leðurjakka sem hann stal. Hann gekk mjög hratt og staldraði sjaldan við. Við krakkarnir fylgdumst oft með honum þegar hann kom í bakaraíið á sunnudögum, hann kom alltaf á slaginu 14, keypti aldrei það sama, stundum kökur, aðra daga brauð og hina stundum bara...