Ég ákvað að taka mig til og segja frá jólunum mínum Ég er aðeins 13 ára og því held ég mest upp á jólin og hlakka því rosalega til. Öll systkinin mín eru flutt að heiman, mamma er fyrsta árið sitt í skóla og pabbi er í hjólastól, þess vegna mun ég gera mest allt í ár. Við skreytum aldrei fyrr en 1.des og þá koma 5 jólasveinar niður af háaloftinu. Um 15.des byrjum við svo að taka allt niður af háaloftinu og ekki fyrr en 20 byrjum við að skreyta. Eldri bróðir minn kemur heim um 16. í ár og þá...