Hehe, gaman að sjá fyrsta tímabilið hjá þér. Var í nákvæmlega eins málum á öðru tímabili, var í 1. sæti þegar 25 leikir voru búnir og í 2. sæti þegar 5 leikir voru eftir en þá voru Chelsea búnir að tryggja sér sigur í deildinni, tapaði seinustu 5 leikjunum og endaði í 4, mjög svekkjandi. Ég notaði einmitt Saha og Hibbert á fyrsta tímabili og þeir voru mjög góðir, Saha var með 22 mörk í 47 leikjum en hann er kominn í þjálfarateymið núna. Hvernig er samt byrjunarliðið þitt?