Persaveldi Persar eru partur af Aríska ættartrénu og eru frá Mið-Asíu. Þeir réðust inn í Íran á 11. öld fyrir Krist. Þeir voru hirðingjar en urðu góðir hermenn vegna erfiðra lifnaðarhátta. Þeir urðu stórveldi um 550 f.kr undir stjórn Kýrosar. Veldi þeirra náði frá Indlandi og til Þrakíu og Egyptalands. Ríki þeirra var þá stærsta og skipulagðasta sem heimurinn hafði séð með góðum vegum meðal annars konungsveginn 2500 km langa frá Sardis til Súsa og póstþjónustu sem var frábærlega skipulögð og...