Þetta eru s.s. raf-bassarnir og raf-gítararnir mínir loksins á einum stað, það hefur að mig minnir aldrei gerst áður :) Frá vinstri til hægri: - Fender USA ‘75 RI Jazz Bass: Fyrsti alvöru bassinn minn, búinn að setja Custom Shop ’60s PU í hann, gæti ekki verið sáttari. - Cimar SG Bass: E-r hundgamall japanskur bassi sem ég keypti á slikk af félaga mínum og gerði svo upp. Hann var upphaflega fallegur á litinn en illa farinn svo ég pússaði hann allan og málaði inní bílskúr, kýs að kalla þennan...