Ég hef prófað báða gítarana (samt svolítið síðan) og var mjög hrifin af báðum. Þægilegt að spila á þá og hljóma mjög vel. Aðal munurinn á þeim er nú held ég aðallega verðið, en svo er ég líka búin að heyra héðan og þaðan að rafkerfið í Studio gíturunum sé ekki það besta, en ég veit ekki hve mikið er til í því. En eins og ég sagði þá er það nú held ég aðallega verðið sem er svona stærsti munurinn á þeim.