Ég byrja yfirleitt á því að hita vel upp þegar ég spila. Spila langar nótur í allskonar patternum og teygi vel á þeim á meðan ég spila. Svo þegar ég er orðinn vel heitur og það kemur að teygingunni sjálfri þá rétti ég vinstri hendina út , læt lófann vísa upp í loft (og halla aðeins niður í átt að gólfi). Svo tek ég bara í einn fingurinn af öðrum og toga þangað til ég finn fyrir teygju í öllum puttanum, lófanum og upphandleggnum. Þetta geri ég svo við báðar hendur. Þumalinn tosar þú bara að...