Jæja gott fólk. Þá er komið að því. Ég ætla að segja ykkur frá því hvernig ég byrjaði að spila á gítar svona í grófum dráttum og segja frá stöffinu mínu ! Þegar ég fékk fyrst einhvern áhuga á tónlist, sem var kannski um svona 12 ára aldur, fannst mér alltaf trommurnar í lögunum lang flottastar ! Ég var alltaf að spila með útí loftið og var staðráðinn í að verða trommari. En svo eitt kvöldið var ég heima hjá vini mínum sem var nýbyrjaður að læra á gítar og ég fékk að prófa gítarinn, þetta var...