Heilt og sælt veri fólkið. Mig langar aðeins að viðra örlitlar vangaveltur sem ég hef verið með um það sem kallast Mixed Martial Arts, og keppnir einsog UFC, og vonast ég eftir að fá skemmtileg álit frá ykkur, samhugurum mínum. Áður en ég held lengra þykir mér nauðsynlegt, vegna þess hvernig umræður á okkar blessaða Huga hafa tilhneigingu til að þróast, að taka fram að ég er ekki að tala gegn þessum hlutum, heldur einungis að viðra vangaveltur sem ég hef verið með undanfarna daga. Vitaskuld...