Leikfélag Selfoss býður upp á ljósanámskeið helgina 21. og 22. október Kennari verður Benedikt Axelsson. Hann hefur verið atvinnuljósamaður í fjölda ára hjá stóru atvinnuleikhúsunum og undanfarin ár hjá Íslenska dansflokknum auk þess sem hann hefur unnið með nokkrum áhugaleikfélögum. Um er að ræða tvískipt námskeið. Laugardagurinn verður fyrir alla er koma á einhvern hátt nálægt vinnu í leikhúsinu; leikarar, leikstjórar, tæknimenn, leikmyndahönnuðir, förðunardömur, búningahönnuðir, stjórnir...