Ég lenti líka í einelti, fyrst frá nemendum og svo þegar að því lauk þá tóku 2 kennarar við. Það endaði með því að ég var rekinn úr grunnskólanum sem allir vinir mínir voru í eftir 9 bekk og þurfti að taka 10 bekk með fólki sem ég þekkti ekki neitt. Svo fór ég í framhaldsskóla og í rauninni gekk allt vel, kynntist fullt af nýju fólki og allt var frábært, en þessi tilfinning, lága sjálfstraustið og einmannaleikinn hvarf ekki og endaði það með sjálfsmorðstilraun rétt fyrir prófin á vorönn á...