Tökulið eitt ferðast til austurrísku Alpanna nálægt (fyrrum)landamærum Júgóslavíu til að taka upp á filmu auglýsingu þar sem þrír jaðaríþrótta áhugamenn flýja undan snjóflóði. Það sem þeir vita hinsvegar ekki er að tökustaðurinn er rétt hjá leynilegu fylgsni serbneska stríðsglæpamannsins, Slobodans Pavle. Þegar þeir ná honum óvart á filmu lendir tökuliðið í lífsháska þar sem þau reyna að komast undan honum í æsilegum eltingarleik í gegnum Alpana þar sem skíði, snjóbretti, fallhlífarstökk,...