Ca. 36 tímar. Ég var ekki að reyna að vaka sem lengst eða neitt þannig heldur var ég að fara frá Bandaríkjunum aftur til Íslands. Ég vaknaði klukkan eitt um hádegi á íslenskum tíma. Fór svo útá flugvöll einhverju seinna. Náði ekki einu sinni að dotta í flugvélinni. Lenti í Keflavík ca. kl. 6 um morguninn og fór svo heim og eiginlega beint í skólann, kom heim úr skólanum kl 16 og fór þá bara að gera eitthvað og fór svo að sofa rétt eftir miðnætti.