Keypti þennann í síðustu viku: BMW 525 E34 '91. Helsti búnaður: Dökkbrún leðurinnrétting, rafdrifin topplúga, M-tech II sportstýri, rafmagn í öllum rúðum og í speglum, þokuljós, o.fl. Vélartengt: Bílinn er með M50B25 vélinni sem er 2.5 lítra, 24 ventla, sex cylindra vél sem skilar 192 hö og 245nm. Bílinn er beinskiptur.