Jæja, ekki ætla ég að setja þessar upplýsingar á Kattasíðuna, svo mikið er víst. Ég fékk tölvupóst þar sem verið var að safna undirskriftum gegn þessum viðbjóði. Velflestir hafa heyrt um hin japönsku bonsai-tré, og því leist mér ekkert á þessa slóð þegar ég sá nafnið fyrst. Kíkið á vefinn http://www.bonsaikitten.com. Þar er að sjá hina merku list að útbúa gæludýr í hvaða lögun sem þér hentar best. Þú semsagt tekur ungan kettling (1 vikna) setur hann í krukku, bíður í nokkrar vikur, fóðrar...