Jájá, hef verið að æfa sóló og svona nokkuð mikið og hef tekið sóló á prófum og svona en tók síðan mitt fyrsta sóló á opinberum vettvangi í ráðhúsinu í stórsveitarmaraþoninu. Er reyndar búinn að taka frekar fá stig miðað við hvað ég er búinn að æfa lengi, er búinn að æfa 5-6 ár held ég. En já, ég þekki allaveganna ekki marga jazzara sem spila á þverflautu en það er samt bara gott mál…