Jæja, þetta er ekki nöldur hjá mér þó að sumir myndu nöldra útaf þessu en þetta verður bara smá saga hjá mér. Þannig var mál með vexti að ég var bara með félögum mínum niðrí bæ og svona, svo fór ég bara á rúntinn og á endanum fór maður auðvitað heim. Ég bý í blokk svo að ég opna hurðirnar sem liggja inn á stigaganginn og geng upp stigann og ætla að opna, það tekst ekki og ég fatta að blessuð móðir mín hefur læst mig úti. Ég banka laust til að vera ekki að vekja mömmu og pabba neitt...