Nú á ég 3. ára gutta (sem ég er ekki með forræði yfir) sem er á leikskóla. Stuttu fyrir jólin var hann og hinir ormarnir mínir hjá mér og við vorum öll inni í stofu. Ég var að setja leik inn í tölvuna hjá mér fyrir elstu ormana en hann var eitthvað að dunda sér fyrir aftan okkur. Þá heyrðum við allt í einu skaðræðisóp frá honum og þegar ég leit aftur sá ég 2 logandi eldspýtur á borðinu sem hann hafð náð í, kveikt á og brennt sig í hendinni. Ég hljóp auðvitað með hann strax undir vatsbunu og...