Auðvitað svara flestir neitandi, því margir eru á móti emo/goth tónlist og tískunni. Segjum svo að raftónlistar áhugamálið væri ekki til og það væri könnun á forsíðu hvort það ætti að stofna það. Þá mundi ég pottþétt svara neitandi því hef ekki áhuga á þessari stefnu og mundi aldrei fara inná áhugamálið. En það eru samt þessi 20-30% sem vilja áhugamálið. Og hvað voru margir sem svöruðu í könnuninni? 4-600 manns, 20% af 400 manns er nú 80 manns.