Hefur einhver annar en ég séð ógeðslegu viðbjóðsauglýsingarnar frá Betra Baki. Þær hljóma einhvern veginn svona: ÞAÐ ER ALLT AÐ VERÐA BRJÁLAÐ, Framlengjum varnarsamninginn við Ameríku, Amerískir tilboðsdagar framlengdir til 18. júlí n.k. Og neðst stendur: VerðSPRENGJA, og “SPRENGJA” með stóru og rauðu letri. Síðan er mynd af einhverjum morðingjanum; herþotuflugmanni og stórri herþotu. Þarna sjáum við viðskiptin á sínu lægsta plani. Ekki aðeins ákveða þeir að lýsa yfir stuðningi við...