Jæja, þá er ég að fara að selja þessa elsku, langar í eitthvað kraftmeira. Bíllinn er vel með farinn, að innan sem og utan, og einungis einn fyrrverandi eigandi sem var gömul kona í borginni. Ég keypti bílinn um miðjan ágúst á seinasta ári og hann hefur ekki farið út fyrir Vestfirði síðan. Einnig hef ég einungis keyrt hann rúma 7000 km sjálfur. Þar af leiðandi er hann í mjög góðu ásigkomulagi. Bíllinn hefur hlotið úrvals aðhlynningu af minni hálfu, ávallt smurður á réttum tíma, og ef...