Sean Babtiste “Django” Reinhardt var Manouche-sígauni, fæddur í Lebieche í Belgíu þann 10.janúar árið 1910. Hann hélt þó mest til í Frakklandi. Þegar hann var aðeins sjö ára að aldri var hann orðinn gríðarlega fær á svokallaðan banjó-gítar sem er sex strengja banjó sem er stillt eins og gítar en hefur þó hljóðeiginleika banjós. Níu ára að aldri kom Django fyrst opinberlega fram á dansstað í Rue du Lappe. Hann fór samt fljótlega eingöngu að spila á gítar og átti glæsta framtíð fyrir sér þegar...