Hæ allir ! Ég er hérna ein í smá vanda. Þannig er mál með vexti að ég er ný komin með hest hérna í Víðidalinn, alveg svakalega rólegan og góðan. Og vandinn er eiginlega sá að ég þori ekki að vera á honum nema inni í gerði og þá gengur ágætlega. Um leið og ég er ein á honum fyrir utan gerðið þá fer hann að láta svona frekjulega og fer bara heim. Og ég hræðslupúkinn þakka bara fyrir að lifa ósköpin af. En greyið hesturinn er ekki með nein læti bara röltir heim með mig ræfilin á bakinu...