Hann vantaði buxur. Það var staðreynd sem konan hans hafði verið dugleg að minna hann á síðastliðna mánuði. Hann gerði sér alveg grein fyrir því sjálfur en reyndi að fresta verslunarferðinni eins og hann gat því honum leið alls ekki vel inni í verslunarmiðstöðvum. Þess vegna frestaði hann þessum leiðangri í tíma og ótíma þar til óhjákvæmilegt var að gera eitthvað í buxnamálinu mikla. Hann ákvað að vera sterkur. Hann hugsaði með sér að það væri ekkert mál að skreppa aðeins inn í...