Þetta eru þrír banner'ar sem ég gerði fyrir löngu en fékk enginn viðbrögð frá stjórnendum. Hér eru linkar á hvern og einn: http://www.esnips.com/doc/daabb260-b7f6-4123-9e91-2defd56b87de/Banner-Herk%C3%A6nska-copy.jpg http://www.esnips.com/doc/78b01255-0ae4-40ec-a66c-4e22692c997b/Banner-Herk%C3%A6nska-2.jpg http://www.esnips.com/doc/6f2013b3-2c13-4397-9849-5c553de54838/Banner-Beta-copy.jpg
Var að prófa “fluid simulator” í Blender sem líkir eftir vökva. Gerði líka stutt myndband sem sýnir kodda drekkt í olíu. Séð og nálgast myndbandið hérna: http://www.esnips.com/doc/c55aa0db-4cfe-4d0f-8942-944d111902ea/Water-better.mov
Gerði þetta vatn með hjálp tutorials. Ég notaði blender. Hér er svo animation með því, mjög stutt en það getur virkað vel ef þú notar repeat (Ferð í “Now playing list” og velur repeat). (Innlent) http://212.30.203.209/Codex/3d/0001_0060.avi
Jæja, hér er önnur mynd eftir mig en núna notaði ég Blender. Vinur minn sagði að það væri betra ef maður ætlaði að gera flóknari hluti og kannski svona meira “pro”. Ég er enþá að læra á það forrit en tókst að búa til þessa mynd.
Þetta er Character'inn minn í Mount & Blade, þarna er hann í hringabrynju. Fannst áhugamálið svolítið dauft svo ákvað að send inn þessa mynd. Ath. minnkaði myndina aðeins svo hún er ekki alveg í bestu gæðum.
Mér finnst þessi mynd ótrúleg. Skil ekki hvernig það er hægt að gera svona með þrívíddar-forriti. Þessi mynd er eftir Carmen DiMichele og er gerð með Art of Illusion.
Mynd eftir mig sem gert er með “Art of Illusion”. Sami abstract stíll eins og mínar fyrri myndir. Mæli eindreginn með þessu 3D forriti þar sem það er ókeypis og frekar auðvelt í notkun. Heimasíða: http://www.artofillusion.org/index Önnur heimsíða gerð af notendum. http://www.housepixels.com/aoitiki/tiki-index.php
Ok ég var að reyna að búa til ljós (hlutur sem sendir frá sér ljós). En þar sem ég fann enga tutorials um að gera ljós varð ég að fikta sjálfur. Eftir mikið fikt tókst mér að fá ljós (hvíti boltinn) en ljósblái boltinn sendir ekki frá sér ljós :(. Ef einhver getur sett tengil á tutorial um að búa til ljós væri það mjög hjálpsamt.
Önnur mynd mín. Ákvað að hafa sama undarlega stíl. Art of Illusion nær ekki sömu gæðum og þau forrit sem kosta, en samt hægt að gera góðar myndir á það.
Þetta er mynd sem ég gerði. Ég er allveg nýr í svona 3D dóti en þökk sé auðlærðu forriti (Art of Illusion)hef ég búið til þessa mynd (Sem ég byrjaði að læra á fyrir 5 dögum eða eitthvað). Mæli með þessu forriti fyrir þá sem langar að prófa 3D en kunna ekkert. Því það er verulega auðlært með frábæru byrjenda tutorial á heimasíðunni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..