Já loksins á toppinn, þurfti sjálfsmark til. Við skulum spyrja að leikslokum. Síðasta umferðin er eftir og í raun er allt galopið enn, þó auðvitað megi leiða líkum að því að KR vinni Stjörnuna og verði þar með meistarar. Fylkismenn eru búnir að standa sig vel í sumar og enginn átti von á að þeir yrðu jafn ofarlega og raun ber vitni, búnir að leiða deildina meiripart sumars. En reynsluleysið verður sennilega til þess að þeir nái ekki titlinum. Gera bara betur næst.