Ég er eflaust ekki sá eini sem hef verið að velta fyrir mér næstu leiktíð Chelsea. Nýr þjálfari og mikið í gangi á leikmannamörkuðum. Nú eru þegar 2 leikmenn farnir á brott frá brúnni, miðjumennirnir Steve Sidwell og Claude Makélélé. Spurning er um hvort að Didier Drogba fari eða verði um kyrrt, en hann virðist skipta um skoðun á 5 mín. fresti og er í algjörum vandræðum með að ákveða sig. Kaupin á Deco voru mistök… höfum ekkert að gera við nýjan miðjumann sem er komin á sín seinustu ár í...