Ekki síðast þegar ég vissi. Annars, ef þú spáir í það, ef ég væri þroskaheftur, myndi ég þá vita það? Þetta átti kannski frekar heima á /heimspeki, en ég verð samt að benda á hvað það er ódýr pólitík hjá þér að kalla fólk einfaldlega þroskaheft ef það er ósammála þér. Ef þér finnst að þessir samningar komi ekki til með að hafa mikil áhrif á örlög Íslands þá hefur þú fullan rétt á þeirri skoðun, en ég er einfaldlega á öðru máli, og ætla að fá að vera það.