Ég hef lent í því oftar en einu sinni að vera stoppaður einhversstaðar á gangi af ókunnugu fólki sem vildi tjá mér hvað ég væri nú sætur. Og þó ég sé stundum með leiðindi hérna á Huga passa ég mig alltaf að vera viðkunnalegur, fyndinn og skemmtilegur IRL. Þannig að ef þú ímyndaðir þér einhvern akfeitan, bólugrafinn og illa lyktandi hálsskegg sem ekki hefur séð dagsljós né baðvatn svo dögum skiptir þá verð ég víst að sprengja þá sápukúlu.