Sæll Sigurjón. Ég er alveg sammála þér um að þungarokk sé af hinu illa, en það eru flestir hlutir í því holdsveika samfélagi sem við búum í. Við höfum fyrir löngu síðan gleymt þeirri hugsjón sem við vorum í augum Guðs, og öll okkar tilvera nú er trúvilla. Réttast væri ef mannlegu samfélagi í heild sinni væri eytt af jörðinni, og við skiluðum Guði aftur gjöfum þeim sem hann gaf okkur. Líf okkar er hnífur í holdi Guðs almáttugs, hnífur sem þarf að fjarlægja.