Ég veit nú ekki hvort það var ást, en ég var mjög hrifinn af sömu stelpunni í mörg ár og talaði aðeins örsjaldan við hana. Síðan talaði ég við hana í síðasta skipti og hef aldrei séð hana aftur. En þá er það eina rétta í stöðunni að líta bjartsýnn fram á veginn, og halda áfram. Þú lætur tilfinningarnar bera þig ofurliði. Geymdu frekar góðu minningarnar um hana, en ekki hætta að lifa lífinu hennar vegna. Hún myndi hvort eð er ekki kunna að meta þá fórn þína, sama hvernig á málið er litið.