Við það að skjóta að Augustine opnast glufa í vörnum Syphoniasar, og það er eins og við manninn mælt, keðja þess fyrrnefnda er skyndilega rétt við fætur hans. Syphonias þarf að hafa sig allan við til að koma sér undan, og það verður lítið úr skotinu; örin smellur af streng og þýtur upp í loftið og út yfir áhorfendabekkina. Syphonias er fljótur að sleppa boganum, bakka og draga stórsverð, óviss um fyrirætlan hins undarlega útbúna mótherja síns. Mikið rétt, þetta provokar. Augustine attack vs....