Þú þarft ekki að eiga hluti til að vera hamingjusamur nema þér sjálfum finnist það. Þar liggur galdurinn, innra með þér. Ég væri alveg sáttur með lífið og tilveruna þó ég leigði herbergi með eldhúsaðstöðu og tæki strætó í vinnuna, því að ég ætla ekki að leyfa litlum fjárumráðum frekar en öðrum umhverfisáhrifum að hafa meiriháttar áhrif á mína hamingju. Það er alveg bókað mál. Auðvitað kostar það peninga að lyfta sér upp og gera hluti, sama hvort það eru ferðalög, veitingahúsaferðir eða önnur...