Þetta er Dave Morris, prófessor yfir stærðfræði- og tölvunarfræðideild Lethbridge háskólans í Kanada, en hann hefur einnig starfað við MIT, Berkeley og háskóla Oklahoma. Hann hefur gefið út þónokkuð af rannsóknum og fjórar bækur byggðar á þeim. Sjálfur útskrifaðist Dave með BS gráðu í stærðfræði frá háskólanum í Wisconsin, Madison árið 1980, en lauk síðar masters- og doktorsprófi frá Chicago háskóla á árunum 1981-1985. Árið 2002 giftist hann Joy Morris, sem einnig er kennari við Lethbridge,...