Ég tók á sínum tíma mjög meðvitaða ákvörðun um að hefja vímuefnaneyslu. Mér höfðu verið boðin kannabisefni, sem ég neitaði þar til ég hefði kynnt mér málið betur. Eftir mánuð af heimildaleit ákvað ég að slá til, líklegast fyrir forvitnis sakir. Nýjar upplifanir er hlutur sem ég sækist mjög í, og þarna var kærkomið tækifæri til að prufa eitthvað alveg nýtt, ólíkt nokkru sem ég hafði áður upplifað. Síðan eru liðin nokkur ár, og ég hef bætt fleiru í reynslubankann á þeim tíma. Slæmur...