Ég lenti einu sinni í þessu, örugglega fyrir ca. 2 árum síðan. Ég lá í sófanum um miðjan dag, með svefn í óreglulegri kantinum, og þegar ég var um það bil að vakna þá fann ég hvernig ég gat ekki hreyft mig, líkaminn andaði sjálfkrafa, ég gerði það ekki sjálfur. Mér fannst eins og einhver sæti ofan á mér, ég lá á bakinu. Svo gerðist einmitt eitt einni sekúndu áður en ég sofnaði í gærkvöldi, reyndar mjög lítið. Ég heyrði kvenmann öskra, einhvernstaðar inn í hausnum á mér. Svo man ég ekki meir,...