Mér hefur verið sagt svo og veit ég ekki sjálfur hverju skal trúa. Það sem mig dreymdi í nótt er gott dæmi. Mig dreymdi að systir mín kom til mín og bað mig um að líta á tölvuna sína því að hún var svo hæg. Ég gerði það og komst að því að hún átti aðeins 95 mb laus á harða disknum. Þegar ég vakna í hádeginu og fer inn til hennar, þá spyr ég að gamni mínu hversu mikið diskpláss hún væri með, og viti menn, hún var með 95,9 mb laus! Ég fraus. Ég sagði henni að fara að eyða öllu óþarfa drasli...