Mig Langar að fara á tvær brautir, ekki það að ég geti ekki ákveðið mig, bara það að mig langar að læra báðar. En það er vandamál, ég veit ekkert hvernig það virkar. Mig langar að fara á Viðskipta og Hagfræðibraut og Félagsfræðibraut. Þetta virkar þannig að kjarninn er 98 ein. á báðum brautum, en hann er mjög svipaður, ég þyrfti bara að taka 21 auka einingar í Félagsfræði til að ná kjarnanum. (( ** HELD ÉG ** )) Svo er það Kjörsvið á hverri braut, sem eru 30 ein. hvor, hér þarf ég hjálp. Á...